|
Hjalli er skógræktarjörð.
Á síðasta áratug 20. aldar fékk Skógræktarfélag Suður-Þingeyinga leigða 100 hektara af Hjallaheiðinni til að rækta upp skóg af ríkinu með samkomulagi við þáverandi ábúenda jarðarinnar. Þegar ríkið seldi síðan jörðina Hjalla var allt heiðarlandið undanskilið í sölunni og í framhaldinu hún öll leigð Skógræktarfélaginu til uppgræðslu. Félagið girti strax áður umrædda 100 ha og hóf landgræðsluskógrækt. Eftir að öll heiðin fékkst var einnig gerður samningur við Norðurlandsskóga og voru skipulagðir um 70 ha til skógræktar í því verkefni en þó er um þriðjungur þess svæðis innan þeirra 100 ha sem áður höfðu verið girtir til landgræðsluskógræktar. Skipulögð skógrækt félagsins í Hjallaheiðinni telur því um 150 ha samtals.
Árið 2003 gerðum við, nýjir eigendur Hjalla, samning við Norðurlandsskóga um nytjaskógrækt á tæpum 46 ha af okkar hluta jarðarinnar. Eitthvað aðeins er gróðursett á hverju ári en þó mun ekki nást að gróðursetja í allt svæðið á 10 árum eins og gert er ráð fyrir að sé þegar gerður er svona samningur. Ástæðan er sú að landið er mjög grasgefið en það veldur erfiðleikum og hleypur upp kostnaðinum við að koma upp skógi. Haustið 2007 skráði ég (Aðalsteinn) mig á þriggja ára námskeið, Grænni skógar 1, fyrir skógræktarbændur. Því líkur með ritgerð og kynningu á henni í júní 2010. Fyrir þá sem hafa áhuga á því að lesa ritgerðina má nálgast hana hér.
|
|