Reglur |  Verðskrá |  Myndir |  English | 

Panta bók



Tjaldstæði



Evrópa unga fólksins




Ferðahópar




Lífsmótun rekur tjaldstæði á starfstöð sinni, Hjalla í Reykjadal.



GPS: N65 42.084 W17 21.000
Beygt er heim að Laugum af þjóðvegi 1 í Reykjadal á veg 846. Þegar komið er yfir brúna er beygt til hægri suðurfyrir sundlaugina. Í miðri brekku er svo beygt á ómerktan malarveg sem liggur fram (inn) dalinn og hann ekinn til enda. Þar er Hjalli.

 

Um tjaldstæðið

Þegar árið 2004 voru gömul tún plægð upp og plantað í þau skjólbelti með það að markmiði að búa til tjaldstæði þar sem hver gestur fær til afnota svæði sem aðrir gestir geta ekki gengið á. Hver gestur tekur því á leigu 80-100 m2 svæði (sem við kjósum að kalla bás) sem hefur skjólbelti og trjágróður á 3 vegu. 2 fjölskyldur geta hæglega deilt básnum með sér og gert er ráð fyrir því að hver og einn geymi bílinn hjá sér „á básnum.“ Í hlíðunum fyrir ofan tjaldstæðið er útivistarskóglendi Skógræktarfélags Suður-Þingeyinga og þar má m.a. finna mikið af berjum og sveppum. Tjaldstæðið er mjög vel staðsett fyrir fólk sem vill skoða náttúruperlur líkt og Mývatn (20 km), Laxárdal (15 km), Tjörnes (50 km), Ásbyrgi (100 km) og Hljóðakletta (125 km) svo eitthvað sé nefnt. Þá er og stutt til Húsavíkur (40 km), höfuðstaðs hvalaskoðunar á Íslandi og þó víðar væri leitað. Á Laugum er mjög góð nýleg útisundlaug en svo má ekki gleyma hinum frábæru Jarðböðum í Mývatnssveit (45 km).


Aðstaðan

Á Hjalla er þjónustuhús 1 sturtu fyrir hvort kyn og 2 snyrtingum fyrir hvort kyn. Uppvöskunaraðstaða er undir þaki á austurgafli hússins. Seirulosunarbúnaður er fyrir hendi en eftir á að leggja malarveg að búnaðnum og því ekki víst að allir geti nýtt sér hann. Sér snyrting fyrir fatlaða verður tilbúin vorið 2011 og ráðgert er að leggja rafmagn í hluta svæðisins það sumar.

   

Opnunartími

Allt árið um kring.



Lífsmótun, sjálfseignarstofnun - Vaðshólum, 650 Laugar - 864 8790